Bikkus Dikkus

People call me Biggi, but my name is Batman.

Wednesday, March 29, 2006

Coldplay - Trouble

Heil og sæl, Heill og sæll, Heilt og sælt... nú er það þitt að ákveða hvaða kyn þú ert.

Allavega, þar sem ég er svo ótrúlega ligeglad guy, þá er spurningin af hverju ég er að spila lag með Kaldaspili eða spilandi kaldir, kaldraspilun, og það í þokkabót lagið Trouble, eða Vandamál. Því ég get sagt ykkur, að nú liggja danir í því (gera það reyndar þegar ég fer út til DK), réttara sagt er ég kominn í einn bobba. LOST félagi minn, hann Steini, ákvað að flýja til Glasgow á vit ævintýrana með föður sínum, og eitthvað að bardúsast í matarboðum og verlsa, helvítiss melurinn.

Málið með hann Steina, er að hann hefur verið LOST félagi minn síðustu 16 þætti af seríu 2 og eitthvað af Seríu 1 þannig það eru örugglega um eða yfir 20 þætir sem við höfum horft á saman (með kertjaljósum og jarðaberjum, ekkert hommalegt við það) og núna þegar helvítiss melurinn er í Glasgow þarf ég gjörasvovel að finna mér nýjan LOST félaga, núna þetta fimmtudagskvöld eða þá að horfa á þetta einn. Satt að segja eru það nú ekki ýkja margir sem eru búnir að horfa á alla 16 þættina þannig sá félagi verður erfitt að finna, en ég mun reyna að leita... vonandi með frábærum árangri að ég get haldið LOST partý !!! eða ekki.

Allavega. ég ætla að hoppa fimmfaldan hring og óska ykkur góðan og vonandi frábæra fimmtudegi.

- Bikkus

Coldplay - Trouble

Oh no, I see
A spider-web is tangled up with me
And I lost my head
And thought of all the stupid things I've said

Oh no, what's this?
A spider-web and I'm caught in the middle
So I turn to run
And thought of all the stupid things I've done

And oh, I never meant to cause you trouble
Oh, I never meant to do you wrong
And oh, well if I ever caused you trouble
Oh, no I never meant to do you harm

Oh no, I see
The spider-web and it's me in the middle
So I twist and turn
But here am I in my little bubble

Singing oh,
I never meant to cause you trouble
And oh, I never meant to do you wrong
Oh, well if I ever caused you trouble
Oh, no I never meant to do you harm

They spun a web for me
They spun a web for me
They spun a web for me

Monday, March 20, 2006

Bang Gang - It's Alright

Heil og sæl og sæl og heil.

Síðasta fór ég og Steini á Rokkaðhringinn loka tónleikana á NASA, þar sem Dikta, Ampop og Hermigervull voru að spila, Þetta skiptið komum við á frábærum tíma, við komum á NASA, fórum á barinn og fengum okkur bjór, löbbuðum niður í salinn, fundum okkur stað framalega og leið og við fundum staðinn byrjaði Dikta að spila, góð tímasetning það. Þá var komið slatti af fólki. Dikta voru mjög góðir og ætla ég að skoða þessa hljómsveit nánar í náinni framtíð.

Jæja þegar þeir voru búnir varð smá hlé, og eftir smá varð NASA orðinn troðinn af fólki, og loksins byrjuðu þeir, mynduðu þeir góða stemmingu. Mér finnst þeir miklu skemmtilegri í live, heldur en á disknum, söngurinn góður og maður upplifar hana einhvernveiginn öðruvísi. Einnig verður textarnir þungari þegar maður sér söngvarann syngja hann. Þessir tónleikar heppnuðust alveg stórvel. Eftir tónleikanna fórum við Steini niðrá Gaukinn og fengum okkur meiri bjór og síðan leyfði ég steina rústa mér í fóbóspilinu þar, en ákvað að rústa honum í pool. Síðan var það pöbbarölt, kannski gaman að minnast á það að Jóhanna komst ekki inná gaukinn... aumingja stieni varð ægilega sár. Þannig við þurftum að fara af gauknum.

Jæja núna ætla ég að gera svolítið merkilegt, ég ætla að biðjast afsökunar á hlut, þar sem ég stíg ekki alltaf alveg í vitið og skýt á fólk vilt og galið. Þannig er mál með vexti að ég og steini fórum í pool og síðan koma Jóhanna kærasta"slash"konanhansísumar og besta vinkona hennar í pool, allt í góðu þar. Spiluðum pool vel og vandlega og síðan þegar við fórum út, þá fór ég að tjá eitthvað með bílinn "minn" (þar að segja mömmu bíl) og hún benti réttilega á það að þetta væri ekki bílinn minn, og ég svaraði með því "Yaris er ekki bíll". Já svo ég ætlaði að segja, afsakið með þetta, þetta var gert í léttu gríni.

en bæbb

-Bikkus :D

Bang Gang - It's Alright

I said something wrong
I just can't hide it
It runs out
And I can't fight it
It's alright

I meant nothing bad
I'm just excited
Please don't cry
I try to fight it
It's alright

And I was
In your arms
And you were in my arms
And I was
In your arms
And you were in my arms
It's alright
It's alright

Monday, March 13, 2006

Live - Run

Jæja ætla nú bara aðeins að bæta við...

Rakst í dáldið skemmtilegt og fyndið, sem ætti nú ekkert að taka neitt alvarlega en alltaf gaman aðskoða þetta :)

Love calculator :D

http://www.crushcalculator.com/content/love/152942434

Þetta er skemmtilegt :)

-Bikkus ;*

Live - Run Away

"Looks like I've lost my will to carry on, my friend" she said
And you can hear it in my whispered cries for love
I need your blissful touch to carry me away again
So can we roll tonight, roll through your desert, can we start over and just...

Run away, run away tonight
It aint no victory, but I don't care, I don't care if its wrong or right
We can just run away, run away tonight
It aint no victory but I don't care, I don't care if its wrong or right

"Looks like I've lost my will to carry on, my friend" she said
I'm like a posse that's been ridin' for days
I've got the scars to prove that love has had its day and it's way with me
So can we roll tonight, roll through your desert, can we start over and just...

Run away, run away tonight
It aint no victory but I don't care, I don't care if its wrong or right
We can just run away, run away tonight
It aint no victory but I don't care, I don't care if its wrong or right

Kent - Den döde vinkeln

Heil og sæl, sit hér fyrir framan tölvuna, með ritstíflu og því ég sit fyrir framan tölvuna á ég í meiri hættu á að fá kransæðistíflu, þannig ég get sagt að ég sit hér fyrir framan tölvuna með rítstíflu og kransæðistíflu. Þannig heilinn er að halda partý og einnig líkaminn.

Ég er að pæla að hafa þetta svona leiðindablogg, þar að segja ætla ég að tala um hvað ég ætla að gera og hvað ég er búinn að vera gera, eða svona hversdagsblogg eins og ég vil kalla það. Það sem ég er búinn að gera get ég sagt í einni línu.

Ég er búinn að vera að vinna í leikskólanum og 10-11.

Já þá er það búið og wollah, nú vitið þið allt hvað ég er búinn að vera að gera seinustu 2 vikur, 2 thumbs upp for that. Enn allavega. Næsta partur af þessari hversdagsblogfærslu er sú að segja hvað ég er búinn að plana, sem er í sjálfu sér ekkert merkilegt, þannig þú getur alveg hoppað upp og sagt jei.

Ég fór í Nexus um daginn og ætlaði að kaupa uppistand með Eddie Izzard (nota bene er þetta líklegast fyndnasti maður á jarðríki) en því miður var allt uppselt hjá honum, þannig í staðinn keypti ég Arrested Develoment, sem er snilldar þættir, þættirnir eru illa steiktir, með aula húmor, þar að segja er svoldill auli, og með svoldinn húmor, þannig ég er með aulahúmor og þessi þættir henntar mér, og líka 2 uppistönd.

Síðan pantaði ég 3 uppistönd með honum viðfræga Eddie Izzard, þar að segja Dress to Kill... geðveikt uppistand, Circle... hef ekki séð, og Sexie... ekki séð heldur. En ég ætla að halda Eddie Izzard maraþon fyrir fólk sem ég þekki. Þessar 3 mynfir verða sýndar í þessari röð væntanlega:

Dress to Kill
Circle
Sexie

Þá ætla ég að kaupa mér kók, pizzu, snakk og fullt af nammi og plana að hlægja þangað til að ég verð kominn með krampa í lungun, like you do, og þetta verður haldið annaðhvort 25 eða 26 Mars.

Síðan ætla ég að plata pabba í verslunarleiðangur í BT, Elko og allar þessar raftækjaverslanir til að finna gott sjónvarp, ætla að gabba hann til að kaupa 40-42" LCD sjónvarp með HD tækninni, helst phillips, einnig heimabíó og DVD spilara ef það er ekki innifalið í heimabíóinu. Ætla að reyna að láta kaupa þetta sjónvarp áður Eddie Izzard marathon kemur, wich me luck :)

Chow

-Bikkus

Fann ekki textan úr þessu og nenni ekki að skrifa hann upp sjálfur :)

Wednesday, March 08, 2006

Robbie Williams - Advertising Space

Jæja, hvað syngur í ykkur, bara allt í ljómandi fyrir mína hönd, allir bara að fara að gifta sig, allavega allir alveg í blundrandi ást, sem er bara hið besta mál, skemmtilegt að hanga með fólki sem er í vímu allan daginn :D

Allavega ég fór að sjá Syriana í Álfabakka, það er svona um það bil hálft ár síðan að ég hef farið í það bíó, einfaldlega af því háskólabíó er nær... og einnig betra bíó.

Jæja best að byrja að tala aðeins um myndina, get sagt að hún var nú bara svona sem góð, betri en margar myndir en maður hefur sér, málið held ég að maður þarf að vera í réttu stemmingunni fyrir svona mynd, því þetta er engan veginn einhverskonar chill mynd. Þessi myndi fjallar um alvöruna. Í rauninni eru BNA menn "vondu kallarnir" sem hugsa ekki um aðrar þjóðir nema sjálfan sig.

Allavega myndi var lengi að gerast og af því maður var þreyttur lá við að maður sofnaði, en engu að síður hélt maður sér vakandi því maður vildi vita hvernig myndin myndi enda, ég segi bara fyrir mína parta að eins gott að við fórum ekki í VIP í lazy boy stólanna því ég hefði eflaust á mun erfiðara með það að halda mér vakandi :)

En núna ætla ég að fara að kvarta yfir helvítiss bíósal álfabakka, maður fer þarna inn til þess að fara í bíó, og auðvitað að fá bíófýlingin, við að setjast niður í fjöldan, og horfa á risastórt tjald með huge ass andlitum, og sjá brjóst á stærð við góðan bíl.

En því miður þá gefur salur 1 í álfabakka ekki þann fýling, fýlingurinn í álfabakkanum er sá að þú ert að horfa á sjónvarpið. Af hverju ? Jú þú kemur þangað inn, og maður tekur eftir er að þeir eru búnir að stækka salin, en ekki tjaldið. Þannig tjaldið verður alveg óhjákvæmilega lítið miðað við stærðina í salnum.

Maður fær á tilfinninguna að þeir hafi bara gert þetta til að græða meira, réttra sagt, þeir gerðu þetta til að geta troða fleiru fólki á sýningarnar. Ég gæti alveg eins fengið myndina lánaða og horfa á hana heima því ég fæ alveg jafnmikið út úr því, og ætti kannski að rukka 500 kjell fyrir gestina sem horfa á hana með. Fínn Álfabekka stemming heima hjá mér.

Allavega, ég ætla að byrja að hafa þann sið að setja texta brot úr laginu sem ég hef titilinn af bloggfærslunni svo að titilinn hafi einhvern tilgang annan en þann að segja hvað ég var hlusta á meðan ég var að skrifa færsluna :)

-Bikkus ;*

Robbie Williams - Advertising Space

There's no earthly way of knowing
What was in your heart
When it stopped going
the whole world shook
a storm was blowing through you
waiting for god to stop this
and up to your neck in darkness
everyone around you was corrupted
say something

there's no dignity in death
to sell the world your last breath
we're still fighting over everything you left..oh

I saw you standing at the gates
when Marlon Brando passed away
you had that look upon your face
advertising space

no one learned from your mistakes
we let our profits go to waste
all that's left in any case
is advertising space

through your eyes the world was burning
please be gentle I'm still learning
you seemed to say as you kept turning up
they poisoned you with compromise
at what point did you realise
everybody loves your life but you

a special agent for the man
through watergate and vietnam
no one really gave a damn
do you think the CIA did

I saw you standing at the gates
when Marlon Brando passed away
you had that look upon your face
advertising space

Wednesday, March 01, 2006

Ampop - Clown

Jæja, langt og lengi hef ég ekki bloggað, en verður hér smá breyting á, því hér kemur ný færsla í gagnið, sem er ekki tilgangurinn í að skemmta ykkur heldur aðeins að stytta tíman minn. Því ég er svo æðislegur.

Hérna sit ég fyrir framan tölvuna og er að raka mig, ekki eins og það skiptir miklu máli að ég skuli vera raka mig, því hárin á mér eru alveg hvít, nema sum eru byrjuð að dökkna... ekki sérlega flott það. Ég ætla bara nota þetta sem kvörtunar færslu, um þar að segja vinnurnar mínar, þó aðalega um 10 - 11, því leikskólinn, er jú, mun skemmtilegri vinna án efa.

Ég var að vinna um daginn og klukkan var orðin 23:56 og ég var farinn að hlakka til að komast heim, maður er byrjaður að taka saman draslið og ætlaði að drulla sér heim til þess að fara að sofa. En viti menn, hvað gerist, koma, hvað kærustupar/hjón/bólfélagar/vinir eða hvað sem þau voru, en þau voru greinilega alkar og dópistar, illalyktandi, ljótum fötum og einstaklega óhrein, einnig ljót, eða... falleg á sinn eigin hátt, einnig var konan klædd eins og 20 ára gella, hún var svona 50. En hvað um það, komu þarna inn, og anskotinn hafi það, þau voru labbandi framhjá kardimomudropunum vilt og galið, og held ég alveg að þau ætluðu að stela dropunum, allavega bjóst ég við því.

Síðan fór kallinn að tala við mig, og um hvað þjóðfélagið væri ömurlegt og hvað ríkisstjórnin var algjörlega gölluð og það þyrfti sko að taka þetta land í gegn. Ég sýndi þessum samræðum engan gaum enda var mér alveg sama um skoðanir þessa manns, en honum virtist ekki líka það vel að ég nennti ekki að tala við hann, en hvað um það. Þá kom loksins kona að kassanum með það sem hún ætlaði að kaupa... Það var hveiti, smjörlíki, og og 5 Kardimommudropar... 5 ! þú þarft ekki svona mikið til þess að baka vöflur, og þau voru ekki að fara að halda einhverja veislu... en síðan kom þessi setning sem ég bjóst aldrei við að heyra frá fólki, og í raun fyrsta skiptið sem ég heyri þessa setningu frá einstaklingi sem er ekki að grínast með þetta. "Ég er að fara að baka sko" jájá ég trúi þér alveg.

Síðan fór konan að tjá sig, kvöldið fer bara batnandi og batnandi... já þar, fór hún að segja hvað framhaldskólar voru lélegir, að þau skuli dirfast að hafa rekið hana. (Kannski var það ástæðan af hverju hún fór að drekka svona mikið, kannski var hún rekinn af því hún var alltaf full í vinnunni, hvað veit ég, ég vinn bara þarna) . Allavega þar fór hún að væla í mér, og þarna var ég bara búinn að missa þolinmæðina þannig ég fór að tala við hana á einhverjum nótum, var orðinn pirraður og þreyttur. Þannig ég svaraði fyrir mig, og spurði spurningar og benti henni á að skólinn hlyti að hafa haft löglega ástæðu til að reka hana, annars ætti hún að kynna sér rétt sinn, eina sem ég fékk á móti var það að ég ætti að leita mér sálfræðings, eða geðlæknis (jújú það er svo sem rétt, getur vel verið að ég eigi fara til geðlæknis, en eins og orðatiltækið segir... Kleppur er víða) og yfirvöld og skólinn væri illur.

Síðan náðum við loksins að reka þau út úr búðinni... þá var klukkan 00:20 og búðin lokaði 00:00 jájá þið getið bent á að þetta eru 20 min, en þetta voru án efa langar 20 min.

Jæja, fleiri sögur úr 10 - 11... Jæja þessi er ekki kvörtun, heldur er þetta frekar spaugilegt.

Jæja 2 ungir piltar komu, í feitari kanntinum, og virtist vera allt í góðu með þá, settu allt það sem þeir ætluðu að kaupa á borðið, allt í lagi með það, fólk gerir það vanalega þegar það ætlar að kaupa hluti. En síðan labbaði hinn í burtu og koma aftur eftir stutta stund og spurði.

"Má ég setja þessa klaka í boxin þarna í hliðin á ?" ég svaraði auðvitað játandi, því mér fannst það frekar augljóst. Síðan spurði hann aftur
"En hvað kosta þeir ?" Ég svaraði að þeir kostuðu 100 krónur, enda stóð það ekki við klakaboxin þannig hann gat ekki vitað það. En síðan kom toppurinn á kvöldinu.
"Má ég taka þá með mér heim ?" Þarna vildi ég svara neitandi og segja að hann þyrfti að kaupa þessa klaka en eftir að hann væri búinn að borga ætti hann setja þá í klakaboxið aftur, en eins og ég er, ekki mikill púki við þá sem ég þekki ekki sagði ég bara já þú mátt það.

Jæja á ég að hafa þessa færslu lengri ? nah nenni því ekki, kem örugglega með meira seinna =)

-Bikkus